

Hér má finna tengla á vefsíður sem benda á úrræði ef maður er í vanda staddur.
Allir tenglar hér að neðan opnast í nýjum vafra / glugga
Landspitalinn
- Geðsvið Landspítalans veitir almenna og sérhæfða geðheilbrigðisþjónustu fyrir íbúa höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar utan Norðausturlands en geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri þjónar íbúum þar.
SÁÁ
- SÁÁ. Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann eru landsamtök sem vinna að áfengis og vímuefnavörnum um allt land og veita öllum landsmönnum þjónustu. Höfuðstöðvarnar eru í Reykjavík en á Akureyri er einnig miðstöð.
Studlar
- Stuðlar - meðferðarstöð fyrir unglinga.
Reykjalundur
- Geðsvið Reykjalundar. Algengast er að sjúklingar komi í endurhæfingu vegna þunglyndis eða kvíða en oft tvinnast saman líkamleg og andleg vandamál.
Rauði Krossinn
- Hjálparsími Rauða Krossins. Gjaldfrjáls sími sem er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna depurðar, kvíða, þunglyndis, eða sjálfsvígshugsana.
Kvennaathvarfið
- Kvennaathvarfið er athvarf, fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna andlegs eða líkamlegs ofbeldis eiginmanns, sambýlismanns eða annarra heimilismanna.
Kvíðameðferðarstöðin
- Kvíðameðferðarstöðin er meðferðarstöð þar sem boðið er upp á hugræna atferlismeðferð við kvíða og skyldum vandkvæðum fyrir fullorðna.
Netráðgjöf
- Netráðgjöf (e-therapy) er nýr valkostur á sviði geðheilbrigðisþjónustu sem gerir þér kleift að leita ráða hjá sérfræðingi gegnum vefinn.
Reyklaus
- Viltu hætta að reykja?
Reyksíminn
- Reyksíminn, 8006030, símaþjónusta fyrir fólk sem vill hætta að reykja.
Félagsmálaráðuneytið
- Sett hefur verið á fót nýtt samræmt þjónustu- og upplýsinganet vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði sem felur í sér nýtt vefsvæði, upplýsingamiðstöð fyrir almenning, fyrirtæki og fjölmiðla og netspjall. Hægt er að ná sambandi við upplýsingamiðstöðina í síma 545 8950 eða í grænu símanúmeri 800 1190 milli 8 og 22 alla virka daga.